Hvað er Europass?
Fimm skjöl sem auðvelda fólki í öðrum löndum Evrópu að skilja færni þína og kunnáttu: - Tvö skjalanna eru öllum opin og hvaða Evrópubúi sem er getur fyllt þau út: -
Ferilskrá er gagnleg til þess að sýna glögglega hvað þú kannt og getur.
Þú getur búið til ferilskrá á netinu með því að nota leiðbeiningar og skjöl sem hægt er að hlaða niður, þ.e. sniðmát, dæmi og leiðbeiningar.
- Tungumálapassi er skjal sem ætlað er til sjálfsmats í tungumálum.
Þú getur fyllt út eigin tungumálapassa á netinu með því að nota leiðbeingarnar á vefnum, þ.e. sniðmát, dæmi og leiðbeiningar.
- Þrjú skjöl sem gefin eru út af menntastofnunum:
- Europass starfsmenntavegabréf staðfestir þá þekkingu og færni sem handhafi hefur aflað sér í öðru Evrópuland;
- Mat og viðurkenning á starfsmenntun er viðurkenning á þeirri þekkingu og færni sem handhafi hefur aflað sér í öðru Evrópulandi.
Þetta skjal inniheldur viðbótarupplýsingar við prófskírteini sem auðvelda aðilum erlendis, sérstaklega atvinnurekendum, að skilja í hverju menntunin fólst;
- Viðurkenning með prófskírteini lýsir þeirri þekkingu og færni sem handhafi hefur aflað sér með háskólanámi.
Þetta skjal inniheldur viðbótarupplýsingar við prófskírteini sem auðvelda aðilum erlendis, sérstaklega atvinnurekendum, að skilja í hverju menntunin fólst.
- Net Europass miðstöðva í hverju landi fyrir sig – fyrsti aðilinn sem hægt er að hafa samband við til þess að fá frekari upplýsingar um Europass. Markmið
- Að aðstoða einstaklinga, sýna fram á þekkingu sína og færni á árangursríkan hátt til að fá vinnu eða afla sér menntunar.
- Að aðstoða atvinnurekendur við að skilja hvað starfsfólk þeirra kann og getur.
- Að aðstoða yfirvöld menntamála við gerð námskrárog dreifingu upplýsinga um þær.
|