Ertu atvinnurekandi?
-
Ertu að leita að starfsfólki?
-
Ferilskrá
Europass ferilskrá (CV)
Látið umsækjendur nota Europass ferilskrá (CV) og fáið þannig skýra mynd af hæfni og færni viðkomandi.
-
Tungumálapassi
Europass Tungumálapassi
Þegar tungumálafærni skiptir máli fyrir viðkomandi starf eða starfsemina í heild, látið umsækjendur þá nota Europass Tungumálapassa til viðbótar.
-
Vefþjónusta
Notið Europass XML til þess búa til gagnagrunn um mannauð fyrirtækisins.
Vefmálið Extensible Markup Language (skammstafað XML) auðveldar upplýsingaskipti á milli mismunandi kerfa, sérstaklega yfir netið.
Europass XML býður upp á fljótlega og auðvelda leið til þess að geyma og ná í upplýsingar um starfsumsækjendur úr öllum öðrum gagnagrunnum um starfsfólk, án þess að þær breytist í útliti eða innihaldi. Til þess að skoða nýjustu útgáfuna af Europass XML kóðanum, smelliðá sækja skrá. Europass ferilskrá sem unnin er á netinu og vistuð sem Adobe® PDF+Europass XML inniheldur Europass XML-viðhengi.
Ath: meðferð persónuupplýsinga verður að vera í samræmi við lög um persónuvernd.
-
Sjá EURES
EURES – Evrópsk vinnumiðlun
EURES (Evrópsk vinnumiðlun) auðveldar frjálst flæði vinnuafls milli landa EEA. Samstarfsaðilar í EURES eru m.a. opinberir aðilar í ráðningarþjónustu, stéttarfélög og samtök atvinnuveitenda. ESB heldur utan um samstarf á vegum EURES.
Aðalverkefni:
- fræðsla og ráðgjöf um störf og lífskjör fyrir einstaklinga sem hyggjast starfa í öðru landi innan EEA
- aðstoð viðvinnuveitendur sem hyggjast ráða erlent vinnuafl
- ráðgjöf fyrir launþega sem og vinnuveitendur í landamærahéruðum.
-
-
Ertu að hugsa um að senda starfsfólk þitt til útlanda til þjálfunar eða tímabundinnar vinnu í öðru fyrirtæki?
-
Europass starfsmenntavegabréf
Europass starfsmenntavegabréf
Skjal sem staðfestir þekkingu og færni sem handhafi hefur aflað sér í öðru Evrópulandi.
-
-
Ertu að leita að frekari upplýsingum um menntunargráður?
-
Mat og viðurkenning á starfsmenntun
Europass mat og viðurkenning á starfsmenntun
Skjal sem staðfestir þá þekkingu og færni sem handhafi hefur aflað sér með ákveðinni starfsmenntun.
-
Viðurkenning með prófskírteini
Europass viðurkenning með prófskírteini
Skjal sem lýsir þeirri þekkingu og færni sem handhafi hefur aflað sér með háskólanámi.
-
Skoða síður á vegum ESB sem fjalla um áætlanir í þágu menntunar og þjálfunar
ESB-áætlanir fyrir menntun og þjálfun
Þessi krækja er á vefsíður á vegum ESB sem fjalla um áætlanir og aðgerðir í þágu menntunar og þjálfunar.
-
