ENIC-NARIC netið
ENIC (Evrópskt net upplýsingamiðstöðva) er net evrópskra upplýsingamiðstöðva. Hlutverk miðstöðvanna er að veita upplýsingar og ráðgjöf um:
-
viðurkenningu prófgráða, skírteina og annarra akademískra eða starfstengdra réttinda
-
menntakerfi allra ESB-landa
-
námstækifæri erlendis, þ.m.t. upplýsingar um lán og styrki og um almenn málefni sem snerta mannaskipti og samanburð á menntun og reynslu milli landa.
NARIC er net landsskrifstofa sem miðlar upplýsingum um viðurkenningu á námi milli landa. NARIC var stofnað 1984 og stefnir að því að bæta viðurkenningu á akademísku námi innan ESB, EEA og í Mið- og Austur-Evrópu.