-
Europass mat og viðurkenning á starfsmenntun er lýsing á starfsmenntun og þeim prófskírteinum sem henni fylgja og útskýra í hverju starfsmenntun í hverju fagi í viðkomandi landi fólst.
Europass mat og viðurkenning á starfsmenntun inniheldur stutta lýsingu á starfshæfni og því í hverju viðkomandi starf felst og veitir þannig innsýn í þá þekkingu, hæfni og færni sem viðkomandi starfsmaður hefur aflað sér.
Mat og viðurkenning á starfsmenntun inniheldur einnig viðbótarupplýsingar um lengd námsins, og eðli og stig menntunarinnar.
Mat og viðurkenning á starfsmenntun kemur ekki í stað upprunalegt skírteinis en, með því að lýsa eðli námsins, getur það aukið líkurnar á því að viðkomandi yfirvöld samþykki þessa menntun.
Europass mat og viðurkenning á starfsmenntun er staðlað evrópskt skjal og hentar því einkar vel þegar sótt er um vinnu í öðru landi.
-
Europass mat og viðurkenning á starfsmenntun er ekki:
- staðfesting sem kemur í stað prófskírteinis;
- kerfi sem tryggir gagnkvæma viðurkenningu.
-
Europass mat og viðurkenning á starfsmenntun getur verið gagnlegt fyrir hugsanlegan atvinnurekenda svo að hann skilji betur hvað umsækjandinn kann og getur.
Þetta er sérstaklega mikilvægt þegar sótt er um vinnu erlendis.
|
|