|
Upplýsingar um EURES, ENIC-NARIC, Euroguidance og störf þar sem krafist er sérstakrar menntunar.
-
EURES – Evrópsk vinnumiðlun
EURES (Evrópsk vinnumiðlun) auðveldar frjálst flæði vinnuafls milli landa EEA. Samstarfsaðilar í EURES eru m.a. opinberir aðilar í ráðningarþjónustu, stéttarfélög og samtök atvinnuveitenda. ESB heldur utan um samstarf á vegum EURES.
Aðalverkefni:
-
fræðsla og ráðgjöf um störf og lífskjör fyrir einstaklinga sem hyggjast starfa í öðru landi innan EEA
-
aðstoð viðvinnuveitendur sem hyggjast ráða erlent vinnuafl
-
ráðgjöf fyrir launþega sem og vinnuveitendur í landamærahéruðum.
Sjá EURES
-
ENIC-NARIC netið
ENIC (Evrópskt net upplýsingamiðstöðva) er net evrópskra upplýsingamiðstöðva. Hlutverk miðstöðvanna er að veita upplýsingar og ráðgjöf um:
-
viðurkenningu prófgráða, skírteina og annarra akademískra eða starfstengdra réttinda
-
menntakerfi allra ESB-landa
-
námstækifæri erlendis, þ.m.t. upplýsingar um lán og styrki og um almenn málefni sem snerta mannaskipti og samanburð á menntun og reynslu milli landa.
NARIC er net landsskrifstofa sem miðlar upplýsingum um viðurkenningu á námi milli landa. NARIC var stofnað 1984 og stefnir að því að bæta viðurkenningu á akademísku námi innan ESB, EEA og í Mið- og Austur-Evrópu.
Sjá ENIC-NARIC
-
Euroguidance – Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar
Euroguidance er net miðstöðva sem gefa ráð í hverju landi fyrir sig um starfsval. Aðalverkefni: - miðlun upplýsingaum námstækifæri í Evrópu, aðallega fyrir ráðgjafa, sem eiga svo að miðla þeim áfram til almennings
- stuðningur við samnýtingu á áreiðanlegum upplýsingum um mennta- og starfsþjálfunarkerfi og um prófgráður og skírteini innan ESB, EEA og í Mið- og Austur-Evrópu
- stuðningur við Ploteus vefinn.
Sjá Euroguidance
-
Starfsgreinar þar sem viss menntun er nauðsynleg
Frekari upplýsingar
-
Störf í Evrópu – þín réttindi
Lagaleg réttindi þín til að vinna í löndum ESB
|